Ađalvalmynd

Auglýsing

Nonni og Svanhildur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Gott kvöld

12. mars 2008 klukkan 22:00



Lángt er síðan að bloggað var hér en nú er á það kominn tími:)  Ég var á AK síðustu helgi fór til Svanhildar og var það svaka gaman, fórum saman á skíði með Valdísi og Hólmari og Svandís litla var með og skemtum við okku öll mjög vel og má taka fram að Svanhildur fór með mér alla leið uppá strítu:P Svo var farið heim og feingum við okkur að borða.... geggjað gott læri og rauðvín með;)  Svo var farið í sjallann og náði Svanhildur að draga Valdísi og Hólmar með (hehe dró meirað seigja Hólmar fram úr rúminu) svo var vaknað dagin eftir þunn og kát:) En allt var svakalega geman og sérstaklega að eiða með þér helginni Svanhildur þetta var allt æðislegt:*

Svo ertu að koma austur eftir 2 daga hlakka ýkt til:)

p.s. Elska þig ástin mín.

Kveðja þinn að eilífu Nonni

Mánudagur 7.janúar

07. janúar 2008 klukkan 20:13
Jæja börnin góð...
Nýja árið leggst bara ágætlega i mig, er að byrja í skóla aftur... nú er málið að halda bara áfram að læra og gera sem allra best úr þessu lífi og lifa því sama hvað bjátar á...
Pælingin hjá mér var sú að ég er að spá í að fara austur aftur í Maí að vinna í sumar og vinna fyrir austan.
Bara veit ekki hvar ennþá, hvort maður eigi að fara aftur á elliheimilið eða hvort maður ætti að prófa eitthvað nýtt ;)...
Jæja jæja, ég er að spá í að fara austur um helgina, það er svona pælingin ef veður leyfir og ef Nonni kemur ekki norður.
Ég skil þetta ekki, seinustu vikur mínar fyrir austan þá var ég að drepast úr spenningi að fara flytja aftur á Akureyri, en viti menn ég held nú bara hreinlega að ég viti ekkert hvað ég vil, vegna þess að eg er farin að sakna þess að vera fyrir austan og langar strax að fara þangað aftur, og við erum að tala um það að ég er bara búin að vera hér á Akureyri í eina viku í dag :/
Og mig langar aftur austur og lifa lífinu sem ég lyfði þar... vinna, borða, vera með nonna, sofa.... :/ en jæja jæja
ég er að fara að byrja í ræktinni, mamma ætlaði að gefa mér líkamsræktarkort í afmælisgjöf þegar ég myndi flytja norður. Svo ætli maður verði ekki að fara að hreyfa sig...

Eruð þið með áramótaheiti? ef svo er hvað er það, ef þið viljið deila því ;)

Mitt er að hætta að naga neglurnar fyrir Nonna, því hann kvartar stöðugt þegar ég set puttana uppí mig og er að fara að byrja að naga... Það er vondur ávani að naga neglurnar og það er ljótt að sjá neglur sumra sem eru nagaðir alveg að kviku, og mínar eru verri :s

2008 komiđ

06. janúar 2008 klukkan 18:53
  • Jæja jæja, það er allt gott að frétta af mér.. ég er flutt heim til mömmu og þeirra :)

    ætli maður komi ekki með svona annál... en samt bara i svona punkta dæmi ;)


  • Ég flutti austur í Maí
  • Flutti aftur á Akureyri í desember
  • var að vinna á elliheimili á Eskifirði
  • Fór til Svíðþjóðar með pabba, Járnbrá, maríu, Svandísi, Jóa, Guðna og Nonna
  • Vorum i 2 vikur
  • Ég hitti ömmu og afa hans Nonna úti í fyrsta skipti
  • Fór til London með mömmu, Dóra, Svandísi og Hlyn
  • Fór í ferðalag með Nonna i eina nótt
  • Fór 2x til reykjavíkur
  • Fór með Nonna í bústað...
  • seldum húsið okkar í Sunnuhlíð 1
  • Fluttum uppí Naustahverfi
  • Við Nonni trúlofuðum okkur :*
  • Fór á Fiskidaga
  • Var fyrstu jólin min ekki með mömmu
  • Hætti i skóla í eina önn
  • Varð 18 ára... líka Bubba, Ragga, Aldís og Halla
  • Nonni minn varð 20
  • Fór í Laufskálaréttir..
  • Fór á hestamót á Iðavöllum
  • Fékk gleraugu
  • Horfði á Ístölt í ógeðslegu frosti í 7 klukkutíma :/
  • Hulda mín eignaðist stelpu
  • Bára mín eignaðist líka stelpu
  • Fór á ættarmót á Skagaströnd, sem var btw ÖMURLEGT
  • man ekki meir
  • man ekki meir
  • man ekki meir
  • man ekki  meir
  • man ekki meir
  • man ekki meir
  • svo þetta er gott i bili

Stundum langar manni...

21. desember 2007 klukkan 23:03
... að fara heim til sín og vera þar ALEINN í friði frá öllum... En stundum er maður fastur einhversstaðar bíllaus og getur ekkert farið... Mig langar bara heim til Akureyrar í Kjarnagötu og vera þar í augnablikinu, í friði og ekki að vera nöldra og hlusta á fólk röfla í manni hvernig maður er og hvernig maður er ekki og hvernig maður á að vera... Ég fer heim innan við viku og get hreint og ekki beðið eftir þeirri stundu þegar við rennum í hlaðið heima og ég tek lyftuna upp á hæðina mína og inn í íbúðina og í herbergið. Ég get bara hreinlega ekki beðið eftir því, fá pásu frá öllum og öllu saman og vera á Norðurlandi þar sem ég á heima. En ekki á Austurlandi sem er að gera mig vitlausa og allt vesenið sem fylgir því að vera hér... Á sumum tímum hefur maður nánast engan að til að tala við, því annað hvort er það fólk fúlt útí mann eða skyldmenni einstaklingsins eða skilur ekki líðan hjá mér Gráta... Mér líður ömurlega í augnablikinu og það er ekki frásögufærandi því maður hefur ekki rétta einstaklingana hjá sér núna til þess að hlusta og veita manni hlýju sína á svona augnabliki... Ég héld að Austurland sé alvarlega á móti manni þessa dagana og hreinlega bíði eftir því að ég fari yfir landamærin Austurland-Norðurland... Stundum held ég að fólk á Austurlandi og Austurland sjálft haldi að ég sé einhver þjónustustúlka fyrir sig sem hefur ekkert annað betra að gera en að snúast í kringum rassgatið á því og gera það sem þeim hentar og vilja...
Ég hef ýmis dæmi um nokkra aðila og fer það ekkert lengra en hjá mér, ég bara meika þetta ekki lengur, oft hefur það komið uppá að manni langar heim en núna undan farna daga hef ég ekkert annað viljað nema fara HEIM... og ég á heima á AKUREYRI í EYJAFIRÐI...

En það sem ég mun segja í lokin er......

....ég vil fara HEIM!

15.desember

15. desember 2007 klukkan 20:33

BLOGG BLOGG BLOGG!!!!
Jæja nú er ég búin að eiga 18 ára afmæli og á mig sjálf :)
Það sem er helst í fréttum, er það að ég er að fara byrja aftur í skóla...nánar tiltekið VMA og mun þá væntanlega flytja aftur á Akureyri á Hótel Mamma... 5 stjörnu og fínasta hótel...
Jæja nú styttist óðum í jólin :) og ég er þegar búin að gefa Nonna jólagjöfina hans...
gaf honum hana áðan ;) ég meira að segja gaf honum nýjan síma :) jeje it was meee...:) enda vita allir sem ég þekki að ég kann ekki að fara með peninga, t.d. í þessu tilfelli að eyða pening í vitleysing eins og Nonna..
Svo verð ég að vinna um jólin á næturvöktum...;) þannig að ég get alltaf borðað með pabba og co og svona... Svo kemur yndislega systir min til min um jolin og ætlar að vera með okkur ;** farin að sakna hennar...(K) þó svo við rífumst daglega þegar við erum saman.!
En jamm jamm.... Ég er hjá Nonna elskunni núna í tölvunni á meðan hann er eitthvað að dansa hallærislega dansa...!!
og jaja... ég hélt smá kaffi seinasta sunnudag þegar ég var orðin 18, það voru ég, pabbi, Járnbrá, María, Veiga, Nonni, pabbi Nonna, mamma nonna, Ragnhildur, Heiða, Valdís og Dagur... :) og það voru kökur og læti :)
En DJ$%&$% hlakkar mig til að flytja norður til mömmu og þeirra...:)
en samt kviður mig alveg hrikalega...Hætta hitta Nonna svona oft
 og eyða tímunum með honum þegar ég er ekki að vinna, vegna þess að ég er frekar oft hjá honum hér á fáskrúðsfirði...
:/ þetta er gallinn fyrir því að fara flytja....:/

En allavega þá bara ætla ég að hætta að blogga í bili og fara vera með Nonna á meðan ég get...

15.október

15. október 2007 klukkan 19:08

Punktablogg...sorry nenni ekki að skrifa allt í samhengi eða neitt..

  • Boot Camp fer að verða búið
  • Fór í Laufskálarréttir
  • Hitti mömmu
  • Svandís kom um helgina
  • Amma er búin að vera hjá okkur í 2-3 vikur
  • en er farin núna.
  • Hún var 91 árs á föstudaginn var.
  • Smá afmælisveisla heima
  • Ég fer í skóla eftir áramót
  • Hlakka til að flytja heim á Akureyri
  • Kvíð samt alllt of mikið fyrir
  • Ég að fara vera "ein" heima í viku
  • Ásamt hundi, ketti, Maríu og kannski annarri stelpu líka..
  • Sakna stelpnanna minna á ak
  • Sakna mömmu og hinna
  • Mamma er flutt í nýja íbúð
  • Ég átti eitt besta föstud. kvöld ævi minnar með Nonna fyrir 2 vikum
  • Ég bauð honum í bústað
  • Hann var svo elskulegur og eldaði..
  • kósý kvöld... var geðveikt gaman...
  • Ég var á næturvakt í nótt
  • og er drullu þreytt
  • ég er á kaffi ilm ásamt röggu og heiðu
  • höfum ekkert a gera
  • nema hanga í tölvunni...
  • Ég kem ekki í heimsókn fyrr en fyrstu helgina í nóvember
  • styttist í 18 ára afmælið
  • aðeins 2 mánuðir
  • haha...
  • Bubba mín átti afmæli á föstudaginn...
  • sama dag og guðný amma...
  • :)
  • Pabbi og Járnbrá að fara til Svíðþjóðar
  • mig langar lika, en vinnan...
  • ætli maður þarfnist ekki peninganna...
  • En ég hef ekkertmeir til að blogga núna...!!!

Ég er enn hér

12. september 2007 klukkan 18:54
Jájá hóhó... Ég er enn á lífi þó ég láti nú ekki oft vita af mér.. En allavega ég er alltaf bara að vinna eða hangandi með Ragnhildi mágkonu ;) litlu elsku rúsínu gelgjunni minni... Allavega það er eins og ég sé flutt til mömmu hans nonna og systurnar hans, vegna þess að ég er alltaf þar svo gisti ég þar annan hvern dag í 6 vikur. vegna þess að ég er í 6 vikna námskeiði hér á rfj í Boot Camp sem er DRULLU  erfitt btw og mæti þangað kl. 6 á morgnanna til 7... anyway það er erfitt að vakna svo klukkan 7 á morgnanna þegar við erum búnar erum við svo hressar að við förum aldrei að sofa eftir það! en já kannski fer ég norður eftir 2 vikur að hjálpa mine mor að flytja en annars þá held ég að ég hafi mjög lítinn tima fyrir stelpna hitting þá...! tyvär en allavegaaaaaaa.... þá já er ég að fara kannski a fásk eftir smá, fá þá far hjá 2 vinnufélögum Nonna... Ja btw við Ragnhildur komum einhverntimann saman í haust til ak city að gera eitthvað fun...!!! jijijiji... hef ekki meiri tima nuna...bæ

Nýtt blogg

20. ágúst 2007 klukkan 22:23
ok vá það er næstum því mánuður síðan ég skrifaði seinast... En það er svolítið að frétta.
Ég er bara alltaf vinnandi frá 8 til 20 eða þá í fríum... Er samt bráðum að verða búin í eldhúsinu á Hulduhlíð og þá tekur við umönnun eða Kaffi Ilmur...
Fiskidagar voru ágætir, hitti Höllu, Aldísi og Bubbu þar, fór svo með mömmu á Króksmótið á laugardeginum að sjá litlu hetjuna mína keppa sem átti btw afmæli í gær og var 8 ára ;) Steini litli sonur Grétars bróðir. Stóð sig eins og hetja á mótinu og allir stoltir í fjölskyldunni af honum í boltanum. Ekkert minna að segja um hana Berglindi mína sem er að fara að æfa handbolta og er ég viss um að hún eigi eftir að finna sig þar og mun standa sig mjög svo vel, hlakka til að fara horfa á hana keppa og veita henni þann stuðning eins og maður hefur sýnt steina, ég hef oft séð hann keppa í rvk þegar ég er hjá þeim og líka á æfingum. Mun maður líka gera það sama með Berglindi elskuna.
En allavega ég fór norður um dagin og svaf eina nótt á dalvik og 2 hjá mömmu heima hjá Möggu móðursystir. Það var reyndar fínt en hlakka nú reyndar mikið til að fara að vera hjá mömmu í hennar eigin íbúð sem er ný buið að koma í ljós að hún fái hana ekki fyrr en um miðjan September.!
Svo svo svo... Stefnum við Nonni, Ragnhildur og Heiða að fara suður um næstu helgi, því þá eigum við öll helgarfrí og munum við pottþétt koma til með að skemmta okkur geðveikt vel..!
Shit, á laugard.morgunin vaknaði ég kl. 8 til að fara í vinnuna, var í vinnunni til 20 fór svo á Kaffi Ilm kl. half 9 og var þar til svona 11 eða 12, fór þá á fáskrúðsfjörð með Heiðu, Ragnhildi og Gunnar því þau voru að koma frá Norðfirði vegna þess að Gunnar fótbrotnaði, datt niður 1 metra hæð og hestur ofan á löppina. Engan vegin gott, en við stoppuðum smá á fásk, vorum svo aftur yfir á rfj að vinna á Kaffi Ilm í eldhúsinu til 3 um nóttina og allt fólkið var farið út um 4 og við að þrífa og skrúbba ælur og svona, fór svo að sofa um svona 5 leitið eða half 6 um nóttina, mætti svo í vinnu kl. 8 til 8 og var BÚIN Á ÞVÍ í gærkvöldi svaf til half 11 og fór svo aftur að sofa um 1 leitið í dag í hádeginu og svaf til hálf 5... þannig ég var gjörsamlega búin á því.. En svo í dag var þessi dagur mjög svo afslappandi og vorum við Nonni svolítið með Kristínu Ilm litlu dúlluna hennar Valdísar. Hjá hestunum og fékk hún að fara smá á hestbak og var ekkert smá stolt af sér. Svo bara skutluðum við henni á rfj og við Nonni fórum á Ilminn að fá okkur að borða. og komum svo heim og ég var að enda við áðan að laga til i herberginu hans Nonna.. duglega ég...:) svo bara vinna í fyrramálið kl. 8 til 20.... cool cool...sjáumst bless

21.júlí

20. júlí 2007 klukkan 20:53
Jæja það er ekkert neitt slæmt að frétta af mér.
Ég er bara alltaf vinnandi núna og mest frá 8-20... svo það er bara vinna, borða, sofa... þessa dagana hjá mér, reyndar er ég búin að gista mikið undan farnar nætur hjá Nonna og keyra bara á milli, og það tekur ekki nema hálftíma.. svo ég þarf alltaf að vakna fyr til að keyra :s slæmt mál slæmt mál...!
Það sem er að frétta er, að nú erum við búin að selja gula húsið :/ sem mér finnst svolítið sorglegt vegna þess að ég átti heima þarna lengi, og Aldís mín var í næsta húsi, á margar minningar þaðan, og sérstaklega vegna þess að við fjölskyldan bjuggum þarna öll 4 þangað til mamma og pabbi skyldu, og mér finnst þá sorglegra að það sé búið að selja húsið... Við sem erum að fara að flytja í aðra íbúð og pabbi hefur aldrei búið þar með okkur og mun aldrei koma til með að gera það...! iss.... vá ég veit ekki, ég hef svo miklar tilfinningar til þessa hús vegna þess að við bjuggum þar sem fjölskylda en ekki bara 3 mæðgur í endann...! Tilfinninga blogg allt í einu...
Svo bara sem er á döfinni er að ég verð ekki í fríi um helgina þar sem það er lung.A núna á Seyðisfirði og ég kemst ekki vegna vinnu, svo franskir dagar helgina eftir og ég kemst ekki vegna vinnu, líka um versló :/ þetta er bara lame sumar... en allavega Fanney vinkona Ragnhildar er að koma til okkar og ég er btw heima hjá Ragnhildi og við erum að fara út, svo ég hef ekki tíma til að blogga lengur

...

04. júlí 2007 klukkan 22:18
Hvað er í gangi með fólk nú til dags, kvarta stundum yfir því að ég bloggi ekki, svo þegar ég blogga þá kvittar það ekki einu sinni :/ iss iss...!
En allavega þá er allt gott að frétta af mér, eins og vanalega. Er bara alltaf að vinna núna, er byrjuð í aðlögun á kvöldin, svo bráðum fer ég að vera sjálfstæð og vinna ein á kvöldin. Semsagt stundum frá 8-20. Ég er heima hjá Nonna núna og ætla ekki að vera að eyða tímanum í að blogga..! bara segja frá því að seinustu helgi þá var ég á Fjórðungsmóti upp á Iðavöllum, mjög svo gaman af og til, en í heildina séð þá var þetta ágætt, hef aldrei farið á svona hestamót og hvað þá svona stórt eins og þetta var! En jamm svo á döfinni er bara vinna og er að fara á ættarmót 13. júli ;) jibbí, alla leið á Skagaströnd, en jamm sjáumst hress og kát, bless